Þar sem selirnir ráða ríkjum

Do it! Do it!

31.08.2007 10:57:03 / martaselur

Pieces Of The People That We Love !!!

Ég fékk ótrúlega sniðuga hugmynd!
Ég ætla að blogga :)
Shit hvað sumarið er búið og það er engan veginn nógu gott , ég er ekki búin að gera nærum því nógu mikið nema af því að vinna ! Og það líka alveg heilan helling ,en auðvita á ég engan pening:)

Það eru allir er mjög mikið inni núna að yfirgefa Akureyrina, kannski besta dæmið er að hinn hlutin af þessari síðu er farin til Svíþjóðar að læra og verða rík , það er leiðinlegt ! en samt ekki vegna þess að Kristín var búin að lofa mér að ég fengi íbúðina fyrir ofan bílskúrinn! vona að það standi ennþávegna þess þetta er það eina sem  ég treysti á vona uppá framtíðina að gera :S ...

Svona helstu ágrip sumarsins eru þessi :
Jafnaldrar mínir útskrifuðust úr framhaldsskóla ,til hamingju !
Sara systir mín gifti sig og ég fór í 1. brúðkaupið mitt , þetta var svo sæt og krúttlegt :)
Ég, Kristín, Sirrý og Berglind Birna skelltum okkur á LUNGA og það var vægast sagt bara ógeðslega gaman, alvöru tjald-fyllerís stemming þar á fer !
Staffaferðin sem farin var helgina fyrir versló með Sjallanum , klárlega snilld ! PS ég var að fá sængina mína aftur í fyrra dag, hún var týnd !
Versló...hún var ekki skemmtileg ! ég var að vinna alla helgina nánst og datt í það á laugardagskvöldinu og var með einhverjar ástarjátningar víst og já ég stal 2 pitsum og er stolt af því að sjálfsögðu , en ég geiska á að jagermeister-inn hafi gert þetta allt ekki Marta Rún ,hún man allavega ekki mikið eftir þessu kvöldi;)
Menningaferð RVK 07- þetta var ææææðislega gaman! GusGus eru ofurtöffarar og ég stefni á að verða eins og þau eftir svona 5-8 ár.
Það var bara skemmtilegt fólk í kringum mig þessa helgi :)
Sara systir eignaðist gullfallega prinsessu ,þetta er fyrsta stelpan sem fæðist í fjölskydunni frá því að ég fæddist ,merkilegt nokk!

En ef ég er að gleyma einhverju ,láttu mig vita :)

Það er hins vegar hellingur á döfinni
TD VERÐ ÉG 20 ÁRA 8.SEPTEMBER:) og það vill svo skemmtilega að Óðinn,Gústi,Guðlaug,Berglind Birna og Sirrý eru með eitthvað plott í gangi og ég fæ ekkert að vita !! ég er að rifna úr forvitni að sjálfsögðu þar sem ég vei ekki einu sinni hvar afmælið mitt verður haldið!! hehe en þetta verður án efa svakalega skemmtilegt kvöld og skemmtunnin verður konungleg! er samt rosalega fúl að það á eftir að vanta Kristínu,Sonju, Maríu og Rögnu og örugglega Berglindi Björk líka!! ekki nógu gott !

En svo er aðalmálið eftir að sjálfsögðu og það er hin árlega ferð til DK!!
Ég og Sonja og Arnþór erum að fara í 5 daga skemmtireisu til Arhus .......það þarf ekki meira að segja ! Ég og Arnþór byrjum að sjálfsögðu að Tjobba Tequila í flugvélinni hahahha
Ég og Sonja ætlum á Karókíbarinn sem við fórum á í fyrra og synja mikið og að sjálfsögðu fara á MCDONALDS !!!!!!!namminamm hahahhahaha
Svo get ég líka hugað mig við að þetta er helgina eftir ammóið mitt og ég hitti sonju, maríu og meira að segja Bergþóru gellu út í danmörku!!
CAN´T WAIT !

en jæja ég er farin út og segi bara bless

KRISTÍN ÉG SAKNA ÞÍN ! (og bloggaðu ;))


Good Old Days :)


DK 05


DK 06

Kv. Marta Rún sem er bitur út í lífið! anskotinn hafi það



 


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 14:11:42 / martaselur

BROS Í LAGI!!


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 18:57:21 / martaselur

Við erum Töffarar ..........

........Og Myspace hefur tekið öll völd í okkar lífi !!


                 www.myspace.com/martabjarta
                 www.myspace.com/kristinasa

  Check It Out :)

 

                       LOVE N KISSES
                       SELIRNIR

                        


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 20:55:54 / martaselur

All of these lines across my face...tell you the story of who i am ....

Jæja nú er komið að því !! ÉG Kristín ætla að blogga :)
Grín þetta er bara Marta !
En já ég hef frá ýmsu að segja eins og alltaf

Ég er að pæla í að klippa mig svolítið fönkí , svona alveg stutt öðru megin og svo svona allt háið hinu megin . það verður töff sjáiði bara til lömbin mín :)

Sonja Mín og Arnþór megabeibí hehe komiu hérna um daginn og vááá hvað það var yndislegt að fá þau ! þau eru án efa það sætasta sem maður sér í heimi! 

Utan við eitt kannski hehe ;) allavega var sú helgi pjúra snilld og ég ætla nú ekki að segja meira frá því , kem því kannsk iað að ég og sonja náðum að taka flotta danstakta við baila me! eða var það bamboleo sonja ? en allavega

Án efa mest sexy sálufélagar í heimi:)


ragna og ég ...æi elska þessi mynd !

Svo var ég að kaupa mér nýjan síma fyrir stuttu og ég er ennþá að læra á appelsínugula kvikindið :) er farin að kunna vel við hann ,ekki spurning !

Síðasta helgi var nú heldur betur snilld eins og allar helgar sem ég hef bara held ég upplifað hahaha! Á föstudaginn fór ég í afmæli til Hauks ofurtöffara/vinnufélaga, gáfum honum voðaflott rauðvín og svo gáfum ég og Óðinn honum rós í bleikum pappír :) hann var að sjálfsögðu ánægður með það ! Var svo bara eiginlega að rúnta með Birki sem var mjög svo gaman:)Vaknaði svo á laugardagsm. með frekar smá mikla þvinku og fór í vinnunna ,mjög gaman.
Svo var sjalla partý í BÁRÐARDAL um kvöldið og það var Geðveikt og ég segi bara takk fyrir kvöldið elskurnar :) snilld!
Byrjaði hins vegar ekki vel þar sem ég og óðinn tókum smá feil á hvað þetta væri hehe!! fengum far með rögnu vinkonu á sveitabæinn við hliðina á ídölum !! haha en vorum sem betur fer heppin að pétur, úlla gella og guðni gátu náð í okkur ! en við löbbuðum nú slatta langt þarna út í sveitinni með bjórkassann undir hönd og í steeeeikjandi hita !! Snilld óðinn snilld ! svo var bara farið í bárðadalinn og grillað illa mikið og drukkið mikið að bjór og varðeldurinn toppaði þetta alveg gjörsamlega! söngurinn dundi pottþétt um allt Ísland:) ekki frá því;)

En jæja ég ætla að enda þetta blogg á góðri línu :

LIFI SELIRNIR!!

lag Dagsins : Back to Black- Amy fokkin winehouse...snillingur!

Kær Kveðja : Marta Rún Þórðardóttir :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 15:12:42 / martaselur

HÚN ER AÐ KOMA!!!

THE REUNION OF THE ZIZI-S!

Passiði ykkur þegar við 2 komum á dansgólfið!:)

 

 

OOHHH hlakka SVO til að sjá þig beibí:*


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 21:04:27 / martaselur

Take it eeeeeeasy ...

Hæ ákvað að henda einu hérna inn :)
Það er margt búin að drífa á mína daga eða þannig, vinn bara alltaf og svona :) En ég er búin að lenda í tvennu furðulegu síðustu vikuna :O
Á fimmtudaginn síðasta skellti ég mér aðeins á capone og ef þið mundið þá var alveg vitlaust! veður og sjórinn náði bara án djóks upp að gangstéttinni hjá capone og ég var ótrúlega sniðug og ákvað að leggja bara upp á gangstétt, sem jú var mjög sniðugt! Þannig að ég og Berglind Birna hlupusm svo að hurðinni og tekur þá annar skórinn minn ekki upp á því að fjúka af mér ! þannig að ég sé hann bara fjúka upp í loft og lenda svo þarna í stærðarinnar polli á götunni og ég finn hann ekkert aftur :(  Svo labba ég inná staðinn eins og jújú ...fífl... í einum skóm hehe En sem betur  fer fórum ég og Berglind nokkrum dögum seinna og finnum skóhelvítið...þvílík snilld!! en hann er frekar ógeðslegur og hann mun ekki fá að vera á fætinum á mér fyrr en hann fer í þvottavélina ..sem verður örugglega ekki alveg strax vegna þess að mamma var rétt í þessu að segja mér að þvottavélin færi ónýt:/ ææ
En hitt furðulega sem ég lendi í var nú bara í morgum þegar ég var að rölta úr bílnum mínum í vinnunna, þá sé ég að það er hringur á götunni og ég tek hann upp og neinei þá er þetta bara giftingahringur :O ætli það sé verði að reyna að segja mér eitthvað þarna :P grín
og hann var illa farinn og það stóð Jóhanna inní honum ...greyið Jóhanna eða kannski maðurinn hennar ! En ég var mikið að pæla í að fara með þennan 14 karata gull hring og láta gera eitthvað flott úr honum handa mér :) en svo fór samviskan að segja til sín þannig að ég fór bara með hann á löggustöðina ! Löggan kom með mjog flókin brandara sem ég fattaði ekki fyrr en ég var komin út í bíl....hann spurði mig hvort ég hafði ekkert pælt í því að setja hann bara upp og ég sagði bara hehe neinei ...og svo sagðann já það væri líka svolítið skrítið afþví að það stendur Jóhanna inní honum ( þá fór ég að hugsa: bíddu afhverju ekki ég ? hann veit ekkert hvað ég heiti ) ..svo í bílnum fattaði ég að hann var jú að meina að Jóhanna var kona eins og ég :)

En það er mikið frammundan að gerast ..Kristín er að fara suður á föstudaginn og svo til Svíden um páskanna og svo var hún að segja mér það að hún á miða á Björk....í stúku ...á fremsta bekk ! Góða skemmtun litla XXXXX:)
Svo er Berglind Björk að koma á morgum :D það verður geggjað stuð á henni eins og alltaf ;)

 
Og við erum svo að fara á árshátíð Sjallans á laugardaginn sem byrjar um 13 leytið með heljarinnar óvissuferð og svo er matur um kvöldið ...oohh get ekki beðið þetta verður svo mikið æði!!!
Og síðast en ekki síst er Ungfrú Norðurland á föstudaginn og að sjálfsögðu fer maður, ef ég verð nú ekki bara að vinna á barnum, hver veit! En ég verð nú að æpa og góla aðeins á hana Írisi skvísu ;) gangi þér vel esskan , og ykkur öllum að sjálfsögðu !

Lag Dagsins : Relax, take it easy-Mika :)

En ég er farin út að gera eitthvað skemmtó
Þangað til næst love you all
Marta Rún


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 21:30:00 / martaselur

Eru ekki að koma páskar annars ?:)

 ákvað að hressa aðeins uppá síðunna ...svona til að tjékka hvort kristín muni eftir að blogga þegar hún er gul...en kannski er hún litblind ? maður veit aldrei!

Síðasta blogg var alveg stór misskilingur held ég ...Berglind Björk og Signa Hrönn eiga alvgjörlega heiðurinn af þessu!

Sálin er í sjallanum á laugardaginn....

Ég sakna Sonju og mér er farið að langa að flytja suður ( núna verður hún hissa :O)

TIL SONJU:

Íslensk-ensk  pylsa      
  
NAFNORÐ (KVENKYN)
hot dog; sausage; frankfurter; wurst; wiener;
léttreykt pylsa: bologna;
pylsur bakaðar í deigi: toad-in-the-hole


Orðið pylsa er tökuorð í íslensku, líklegast úr dönsku pølse. Í nýnorsku og færeysku þekkist myndin pylsa, í sænsku pölsa og í sænskum mállýskum pylsa. Það þekkist í málinu frá því á 17. öld. Miðað við uppruna er rétt að skrifa pylsa með -y- en orðmyndin pulsa er framburðarmynd, hugsanlega fyrir áhrif frá dönsku.



Ég segi Pylsa og Bæjó



» 8 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 21:15:06 / martaselur

Sing this song,remind me that we´ll always have each other !

GUUUUUÐÐÐ MINN GÓÐUR!!!!!!!!!!!!!!
Þvílík helgi!!! Ég veit ekki hvar ég á að byrja!
Þetta reyndar ætlaði ekkert að byrja vel hjá mér sko! ég fór með flugi á fimmtudeginum og eftir að ég fékk miðann minn í hendurnar þá var 1 og 1/2 tíma seinkun þannig að ég skellti mér til stínu og kvaddi hana aðeins og svo kem ég aftur á flugvöllinn svona 10 mín fyrir brotför og sest síðan bara í flugvélina í góðum fíling!!!! neinei svo vill svo skemmtilega til að einhver gaur er í sama númeri og ég af buxum ! nei djók hann var með sama sætsnúmer og ég :) og þá kemur einhver maður og segir mér að ég eigi ekkert að vera í þessari vél ...afþví að ég væri sko bara hoppari ..á fauk svolítið í mína og ég strunsaði útúr vélinni og allir horfðu á mig eins og ég væri hryðjuverkamaður :P
En ég komst loks á leiðarenda og eftir langa bið hitti ég skessurnar mínar 2 ...SONJA & KAMILLU !! oohh það var svo frábært að hitta ykkur :D

Föstudagur: Fór í smáró með sonju minni sem er án efa best í heimi:) love you ! og ég náði að hemja mig í búðunum og verslaði ekki neitt !!! en svo fór ég í ham þegar ég fór með söru siss í kringlunna og verslaði mér fyrir 25 kall :D hihi (úps) svo svo styttist í stelpurnar og þegar þær komu fórum við í íbúðinni sem var án efa aðal party pleisið í RVK þessa helgina :) (Helgi Rafn var meðal annars þarna um tíma hhahaha ) Við komum okkur svo fyrir og svo minnir mig bara að bjórin hafi tekið öll völd!! og það var ekki leiðinlegt skal ég segja ykkur :)
Ohh þetta var svo æðislegt kvöld !! ég og ása og berglind birna og berglind björk og sonja tókum þetta kvöld með stæl og skelltum okkur niður í bæ ! meðan hinnir lágu heima dauðir HAHA ;) og ég get nú ekki sagt það að ég sjái eftir að hafa farið niður í bæ hahahahaha en allavega þetta var magnað kvöld ....shiiiitttt!

Laugardagur : Berglind björk og vinur :) komu og náðu í mig og við fórum hrikalega MYGLAÐAR og berglind með Ríðuhnakka 2007 á hausnum á sér hehehehehe ! og hún ætlaði að kaupa sér síma en það endaði með því að ég keypti mér skó:) gott það!
Sökum þvinku fórum við bara heim og ég lá í símanum í svona 2 tíma(eins og mér er einni lagið:D) þar til ása kom (ég var alein, stelpurnar að spreða) og við vorum held ég það þunnasta sem sést hefur ,við vorum bara flottar á því og fengum okkur einn ííískaldan úr fallegasta ísskápnum sem búin hefur verið til!

 Svo fór að síga á kvöldið og áður en maður vissi af vorum við að hlusta á fallegu mennina í Incubus sem  voru heitari en allt heitt:)!!


Þegar komið var aftur í litla himnaríkið okkar í ásholtinu var ekkert annað að gera en að heeeeella í sig og að sjálfsögðu fórum við eftir leikreglunum  aftþví að enginn vildi tapa !!( Guðlaug það er samt ennþá 27-9 fyrir mér HAHAHAHAHA) Eftir mikinn bjór og mikið af drykkjuspilum og fallegum dönum og Hlátrasköllum og ælu inná baði þá var stefnan tekinn á Nasa og það var æði ,svo biðu hressó og bar 11 líka og ekki var nú verra þar !!ég var að sjálfsögðu sú sem entist lengst á djamminu og er mjög stölt af því og krýni mig hér með Drottningu ferðarinnar :D

hahahaaha já é gsem sagt fór heim held ég að verða 7 á sunnudagsmorguminn og borðaði pitsuna mína og fékk mér loka bjórinn með tárin í augunum :'( hehe og svofnaði svo ( já by he way rétt áður en það hringdi einhver úr kristjánsbakaríi í mig woddafokk??)

Sunnudagur : Vaknaði við rassanudd alla Guðlaug hahaha aaaagalega næs :P ég fékk svo að þrífa fjólubláa ælu af veggjum baðherbergisins og deyja úr þvinku :) Svo var haldið á Burger King og borðað vondan hambó og skundað heim.........

Það sem stendur uppúr :
AAAALLLLLAAAA (næst þegar þið hittið guddu buddu biðjiði hana um að segja þetta!
Hahh Hahh ....sirrý á heiðurinn af þessum !
Incubus ...vá þeir eru barasta rosalegir 
Djammið ...love partying
Þegar María fór undir rúm ...ég skil það ekki ennþá !!?!?!?!!HAHA
Þegar Berglind Birna var að upplýsa okkur um að Burger King hafi hringt í hana HAAHAHHA


Lag Helgarinnar : DIG-INCUBUS !!!!
Takk fyrir helgina .sonja ,kamilla , guðlaug ,berglind birna,berglind björk ,sirrý ,maría ,ása, óðinn,elfa, chris hahahahahahhahaahahaha grííííín

Love From Marty Queen of all party :'*

Endum þetta á myn mynd ferðarinnar !


» 33 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 13:55:27 / km87

dream a little dream of meeeeee

ég ætla að starta deginum með litlum draumi sem BJ dreymdi um daginn! PS Signa er nakin:D

Draumurinn:
Kristín var að tala við Birtu sætu í kvosinni einn bjartan skóladag og alllt í einu kemur strákur sem er þekktur undir nafninu X man (allavegana í þessari frásögn) semsagt X man kemur og knúsar Kristínu af öllu afli og smellir á hana einum á kinnina og segir hæ hvað segiru og Kristín er alveg furðulostin og segir bara hæææ..
Og X man vill þá eiga orð við BJ af því að hann er með einhverjar áhyggjur af ástarmálum kristínar !
Svo lætur X maninn gossa út úr sér : ertu hrifin af mér eða er Eddie Murphy ennþá í uppáhaldi
!?!?!!? 


Og svo bara hélt gamli maðurinn áfram að hræra í stóra pottinum( Með hermannahúfuna) og benti unga manninnum á að hann væri sko í herbúðum!!!!


Takk fyrir helgina, þeir sem ég hitti(nema sóðalegi vinur signu í pottinum)
Er farin að borða pítsu :) Ef hún fokkin kemur !
KV. Marta er með barta  húúhúú
Og Kristín er ristað brauð
og signa er ennþá nakin!! lalalalalal

efusxrtfajshajxhahqjgxkxgajkmhxkqmgxkmqgxjkaqfxkafxjayhgfxyajgsajxhaikhxfgxhsyhxjgamh
Signa ætlar að eiga punchlinið í þessu bloggi en hún var ekki með gleraugun sín í dag þannig að bara ...bless


» 14 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 23:12:34 / martaselur

Þó líði ár og öld .....

Jæja ég hef ákveðið að taka völdin og Blogga!Akkúrat núna hef ég ekkert að gera..er að passa og hef bara nákvæmlega ekkert betra að gera en að blogga J

Meðan allir voru að halda upp á próflok síðustu helgi vann ég baki brotnu allan laugardaginn í 10 klst
J (oohh stolt) En annað er nú sagt með föstudagskv. Ehhh vonum bara að þú hittir mig ekki :/ en ég skemmti mér bara konunglega hehe segjum það J


Kristín var í stuði að sjálfsögðu og ég get lofað ykkur því að Kaffi Ak hefur grætt vel á henni ef tröllatópas hefur verið við hendina ;)

Svo erum við byrjaðar á fullu í ræktinni ....loksiiiiiiins
Jþað er klikkað gaman!
Ég stefni á að verða eins og Scarlett Johanson(já Marta mín hehe) en hver veit ?:O
Veit ekki með Kristínu ...hún tjáir sig kannski um það hér seinna meir!

Var að fá frekar miklar snilldar fréttir fyrir alvöru djammara áðan :
http://www.hugi.is/djammid/articles.php?page=view&contentId=4482293
  

Það verður gaman að prófa eitthvað svona nýtt ..það er alveg á hreinu! Ég ætla allavega pottþétt að mæta :D

Ragna gella á afmæli 11.feb og heldur það með stæl 10. feb og það er stefnan að fara til París í smá svona flippferð
J ógó gaman !! (ps Ragna ætlar að bjóða :D engill þessi stelpukind J
)

En já ég ætlaði bara svona að láa vita að jólin hjá okkur eru loksins búin og við erum komnar aftur í bloggið ..eða allavega ég ...þið þekkið Kristíu alveg ;)


Verið Hress og ekkert Stress 8)
Marta Hressasta

OG BEGGA DRULLAÐU ÞÉR NORÐUR NÆSTU HELGI!!!!:*


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 00:59:21 / km87

Jólablogg - Kommentaðu



Hvað er uppi lagsmenn?
Við erum hérna að horfa á fallegasta mann í heimi og verðandi föður barna Kristínar (Johnny Depp).
Marta fékk Kristínu loksins til að blogga krakkar.
Gleðileg jól
Kv. Selirnir




» 28 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 14:38:52 / martaselur

Læra ? Ha ? Ok ..oohh

Hæ Homieeees:)

Fólk er farið að bíða eftir nýju bloggi og ætli maður verði ekki að redda því...ekki gerir Kristín það !!!:)

Ég ætla að byrja á að lýsa yfir peningaleysi mínu :S hvað er málið ! ég á engan pening samt er ég alltaf að vinna ...alveg óþolandi

 

 



Helgin er búin ..ég get held ég alveg fullyrt það að það var gaman á laugardaginn :) já allavega þar til maður sat læstur úti á stuttum kjól og bandaskóm hahahahahahaha og einhver kelling að öskra á mig  það var frekar fyndið! en nóg um það

Ástrós og Birta mega-skutlur héldu ammó á kaffi Ak í gær og það var nú bara nokkuð gaman, sérsaklega þar sem spilað var Geggjuð tónlist!!!

 

 



Föstudagskvöldið var líka frábært ...loksins tók ég djamm með Berglindi minni :D algjör snilld að sjá hana á eyrnasnepplunum hahahahahaha ég veit samt ekki hvort það var fyndnara að sjá hana fulla eða hitta hana daginn eftir í þvinku hambó ??? hvað finnst þér Berglind ??:D

 

 



..lalala ég sakna Stínu ....

 

 



Ég er eiginlega uppiskroppa með umræðuefni hehe en það koma kannski myndir frá gærkvöldinu ..held að Kristínó hafi þekkið eitthvað :)

 

 



4 vinnudagar á Norðlenska eftir ! Veit samt ekki hvort það sé gott eða slæmt ? Á eftir að sakna fólksins ..góður mórall þar á bæ :) ég á eftir að sakna hlátursins hennar Ásu dúllu hihi og það verður leiðinlegt að hitta Huldu ekki jafn mikið:( þó hún sé nú yfirleitt á djamminu hehe;) (Fyrirgefðu að ég slá þig utan undir í gær hihi)

 

 



Jæja svo er síðasta prófið á Miðvikudaginn og ég og Begga verður sveittar að læra þangað til ! ekki trufla okkur !!!!:)

 

 



Svo á Gúddí Búddí mín ammó næstu helgi og þá verður við stelpurnar frekar skrautlegar ef ég þekki okkur rétt ;) Og þetta verður líka síðasta helgin hennar Beggu hérna á AK :( þannig að maður verður nú að knúsa hana allt kvöldið :)

 

 



Jæja Stína mín ..þetta var fyrir þig :********

 

 



Lag Dagsins : What is love -Haddaway hahahahaha:)

 

 

Örvhenti Litli Mongóinn Out 8)

 




 


» 20 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 20:19:47 / martaselur

!! GLEÐILEG JÓL !!


Mér langaði bara að deila því með ykkur að ég á þetta !!!!:)
Gleðileg jól Daði :D:D og auðvita Berglind líka hehe:*

Já og kannski að segja það líka að ég tek fyrir allt gott sem ég hef einhvertímann sagt um bíllinn minn hann Palla!!!Hann bilaði aftur á mig og það ekkert lítið í þetta skiptið:( þið megið hrækja á hann næst mín vegna (nema Gúddí Búddí því að hún er búin að því hahaha) og passiði bara að það fari ekki á mig:) 

Lög dagsins : KLÁRLEGA öll Nirvana lögin á nýja guðdómlega,gullfallega,frábæra,æðislega, glorious dvd disknum mínum :D

Kv.Marta Rún sem er komin í jólaskap by the way;)

» 9 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 17:58:45 / martaselur

Hambó kl 8??? tjaaaa

hæ hó(s)
já ég get ekki sagt að þessi helgi hafi verið eitthvað æðisleg ..þar sem ég var að vinna föst og laug en það er samt alltaf gaman í vinnunni:)
En gaman að segja frá því að ég er komin með nýja vinnu ...á bláu könnunni og verð þar eftir áramót allan daginn með kaffi á könnunni hihi og ég ætla að gerast svo djörf að fara ekki í skóla eina önn! já ég er að stinga mér í djúpu laugina en það er verður að hafa það og ég held að það verði meira að segja bara gaman:D

En gærkvöldið var klárlega það sem reddaði helginni:) Ég var fyrst með henni Rögnu minni að horfa á Crash sem er by the way geðveik mynd og Ragna gella fékk sér hambó ..varð bara að koma því að hihihihi
Já svo fór ég flugvöllinn að ná í BJ Gold AKA Saint Mary Christinu sem hélt sér í borg óttans alla helgina og þegar ég kom var alveg helling af myndavélum og það fyrsta sem ég hugsaði var : ooohh hver kjaftaði frá að ég væri að koma hingað!;) en þá var  bara verið að taka viðtal við einhvern mann sem ég hef aldrei séð áður:S allir að klappa fyrir honum og svona ..voða happy móment !
Svo fór þetta allt að byrja ..kvöldið sko! Ég og Gúddí Búddí fórum að rúnta og hittum arnar snilling ;) og hann fór heim að ná í bjór og kom yfir til oss svo bættist maría og berglind birna við og þetta var bara algjör snilld fannst mér :) Arnar tók svo uppá því að gera nokkrar handbremsubeygjur og heyrir held ég ekkert eftir það hehehehe:D
Guðlaug kom svo með fyndnasta brandara sem ég hef heyrt !!!!
við fórum bak við hús að pissa hihihi og ég sagði voðalega er bjart hérna!! og þá kemur guðlaug : nú enda er Ljósgafinn hérna !!!!  góður gulla góður;)Svo fór að líða á nóttina og stelpurnar fóru heim og ég og Arnar héldum áfram að flippa til takk fyrir hálf níu í morgum :D hahaha vorum fyrir utan hjá maríu í svona tvo tíma á já frekar feitum trúnó :) Svo fattaði ég það að arnar var búin að týna öðrum vettlingnum mínum þannig að við fórum alstaðar þar sem við vorum búin að stoppa og sem betur fer fundum  við hann svo ætluðum við að fara heim og fórum þá að tala um drauga og ég var svo hrædd að við rúntuðum lengur hihihi þá var kl orðin hálf sjö og við tókum stefnuna á norðlenska og heilsuðum upp á fyrrverandi samatarfsfólk...snilld !!!  Ég fékk svo handbremsubeyjukennslu ala Arnar og það endaði með því að ..að ég ..að sjálfsögðu...beylgaði felguna á bílnum mínum !!! afhverju þarf að hafa kantsteina allstaðar:S damn damn damn en held það sé samt allt í lagi með dekkið :/ 
jiii það gerðist svo mikið ég gleymi örugglega einhverju:P
Ef það er einhver maður sem finnst skemmtilegt að bögga mig í þessum heimi þá er það hann arnar freyr óskarsson hehe hann tók uppá því að bibba á ALLA sem voru að labba í vinnunna í morgum  þetta var líka ekkert svona biiiiibb þetta var svona biiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiibbbbb hehe  enduðum þetta svo á kl 8 að fá okkur hambó í ak-inn hahahaa það var nú algjör snilld :)
jæja er þetta ekki að verða komið gott arnar ? ég bloggaði allavega :)
Æi þú ert bestur :*

ég sakna stínu :(
og ég er í fílu afþví að sonja kom ekki um helgina :( hihi
ég nenni ekki að gera ritgerð (
ég hata karlmenn ...þeir eru nánast allir aumingjar :S
ok ætla ekki að hafa þetta lengra enda orðið frekar langt og ég segi bara HÚRRA FYRIR ÞÉR ef þú virkilega lagðir í það að lesa þetta allt:D hehe

Lag Dagsins :The Kill-30 Seconds To Mars ...killer lag !8)

jæja ég er farin að borða :) bæjó elskurnar
Marta Rún


» 24 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 17:44:57 / kristinselur

Tjúttífjútt

Fyrir:



Eftir:



Trillilú: http://community.webshots.com/user/selirnir

» 15 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4